
LOCAL Partners
LOCAL Partners er sérhæft ráðgjafafyrirtæki sem veitir einstaklingum og fyrirtækjum þjónustu á sviði lögmennsku, fjármála, reikningshalds og endurskoðunar. Innan vébanda félagsins eru starfsmenn með áratuga reynslu.
LOCAL Partners sérhæfa sig í ráðgjöf til fyrirtækja, bæði innlendra og erlendra. Félagið hefur tekið að sér að leiða kaup- og söluferli á fyrirtækjum. Félagið hefur unnið fjölmargar áreiðanleikakannanir fyrir bæði kaupendur og seljendur fyrirtækja. Þá hefur félagið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félaga.
Starfssvið LOCAL Partners eru eftirfarandi: LOCAL lögmenn, LOCAL fjármál og LOCAL endurskoðun.
LOCAL lögmenn annast lögfræðiráðgjöf á sviði fjármála-, félaga- og skattaréttar auk almennrar lögfræðiþjónustu.
LOCAL fjármál annast ráðgjöf á sviði fjármála, reikningshalds, skattamála og bókhalds.
LOCAL endurskoðun sérhæfir sig í endurskoðun auk annars konar úttekta og staðfestinga.
